Description: |
|
(English)
An art-house comedy about an ordinary family running the unusual business of elf tourism and spiritual sessions. Their house is built around an elf stone, which is sacred to the wife Lara, who is blessed with a sixth sense.
Oscar runs the family business of elf tourism and medium sessions, but it does not quite pay for all the bills. One day he gets an offer from a German tourist who is willing to buy the elf stone for a substantial amount... Will he do it?
(Icelandic)
Hjónin Lára og Óskar reka fjölskyldufyrirtæki þar sem gert er út á ýmsa yfirnáttúrulega starfsemi. Lára er virtur miðill og í góðum tengslum við álfheima. Í garðinum við hús þeirra stendur voldugur álfasteinn og Lára umgengst íbúa hans af mikilli virðingu.
Viðskiptamódelið gekk hins vegar ekki upp og lánardrottnar eru búnir að missa þolinmæðina. Óskar leynir fjölskyldu sína því að gjaldþrot blasi við og er á barmi örvæntingar. Honum finnst hann því himin höndum hafa tekið þegar þýskur sérvitringur gerir honum rausnarlegt tilboð í álfasteininn; tilboð sem myndi leysa fjárhagsvandann á einu bretti. Óskar veit þó að Lára tæki ekki í mál að hrófla við steininum. Hann grípur því til örþrifaráða og selur steininn án samráðs við hana. Í kjölfarið hefst óvænt atburðarás með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. |